Reencle Prime – Grá jarðgerðarvél

87.900 kr.

Á lager

Lýsing

Reencle er heimajarðgerðavél þar sem hægt er að setja allt að 1 kg í tækið á dag og umfang lífræna úrgangsins minnkar um 90% á um 24 klst.

Með Reencle fylgir allt sem þarf til jarðgerðar og ágætt að taka það fram að með vélinni fylgja tveir kolafilterar sem taka lykt en hver um sig hefur 9-12 mánaða líftíma.

Við erum með fésbókarsíðu sem heitir Reencle Ísland þar sem hægt er að skoða m.a. myndbönd af tækinu.  Einnig bjóðum við upp á lokaðan hóp fyrir notendur.

Í kassanum er allt sem þú þarft til að hefja moltugerðina!

  • Reencle jarðgerðarvélin – 1 stk

  • Kolefnisfilterar – 2 stk (endast í 9–12 mánuði hvor)

  • Örverustarter – 1 stk

  • Lítil skófla – 1 stk

 

 

Frekari upplýsingar

Þyngd 9 kg
Ummál 33,1 × 30,5 × 46,7 cm